Í tilefni 50 ára afmælis Kvennafrídagsins, föstudaginn 24. október 2025, fluttu félagar úr Leikfélagi Eyrarbakka leiklestur á nýju leikriti eftir Huldu Ólafsdóttur.
„Stelpur! Er baráttan búin?“
Verkið hefst í ófullgerðu eldhúsi í úthverfi Reykjavíkur um miðja síðustu öld. Þar hittast þrjár konur, og með þeim byrjar ferðalag í gegnum tíma, þar sem við fylgjumst með dætrum þeirra taka við keflinu, kynslóð af kynslóð, allt til ársins 2020.
Eftir sýninguna sungu viðstaddir lög sem urðu tákn kvennabaráttunnar, „Áfram stelpur“ og fleiri sem við þekkjum og elskum, við undirleik: Jón Aron Lundberg.
Barna leiksýning á Jónsmessuhátíð! Leikfélag Eyrarbakka kynnti hugljúfan og ævintýralegan leikþátt fyrir börn á Jónsmessuhátíð 21. júní kl. 12:00 við Sjóminjasafnið á Eyrarbakka! 🧚♂️ Ævintýraverur leita að týndri gleðistjörnu – með hjálp frá börnunum sem horfðu á! 💫
Þátturinn var saminn sérstaklega fyrir Jónsmessuhátíðina á Eyrarbakka.
Höfundur: Álfrún Auður Bjarnadóttir
Samvinnuverkefni Söngfjelagsins, Byggðasafns Árnesinga, Kórs Eyrarbakkakirkju og Leikfélags Eyrarbakka 11. og 12. október 2024
Kvöldvökur og samsöngur úr Fjárlögunum í heimahúsum, samræður með tóndæmum í varðveisluhúsi Byggðasafns Árnesinga og hátíðartónleikar í Eyrarbakkakirkju. Félagar úr Söngfjelaginu og Leikfélagi Eyrarbakka endurvekja gömlu kvöldvökustemmninguna með söng og sögum í völdum heimahúsum á Bakkanum föstudagskvöldið 11. október. Einsöngvararnir Björg Þórhallsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson og Hildigunnur Einarsdóttir, ásamt Hilmari Erni Agnarssyni og félögum úr leikfélagi Eyrarbakka sköpuðu ógleymanlega kvöldvökustemningu. Flytjendur voru Söngfjelagið undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, og Kór Eyrarbakkakirkju undir stjórn Péturs Nóa Stefánssonar. Á efnisskránni eru lög eftir tónskáld með tengsl við Eyrarbakka. Þá var frumflutt verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur tónskáld.
Leiklistarnámskeiðið var haldið helgina 9. - 10. september 2023, í sal Byggðasafnsins við Búðarstíg, klukkan 10:00 – 14:00 báða dagana. Námskeiðið var í boði Leikfélagsins. Byggðasafnið lánaði salinn.
Námskeið var ekki síst mikilvægt til að mynda hóp sem kynnist, losar um hömlur, ögrar sér, hlær, snertist og leikur sér saman
Hulda Ólafsdóttir sá um námskeiðið. Hún hefur haldið ótal námskeið í leikrænni tjáningu fyrir alla aldurshópa.