Hvað gerist þegar ungt par stígur inn í heim fullorðinna með allar sínar vonir, drauma – og óvæntar áskoranir?
Stöndum saman – Söng- og gleðileikur eftir Huldu Ólafsdóttur sem pakkar saman dramatík, gleði og húmor í eina ógleymanlega sýningu! Hvað gerist þegar ungt par stígur inn í heim fullorðinna með allar sínar vonir og drauma – en líka óvæntar áskoranir? Söng- og gleðileikurinn Stöndum saman eftir Huldu Ólafsdóttur tók á þessu með stórskemmtilegri blöndu af dramatík, gleði og miklum húmor!
Leikritið var fyrst sýnt við miklar vinsældir árið 1993 á veitingahúsinu Glóðinni í Keflavík, en nú hefur höfundurinn – sem jafnframt er leikstjóri – gefið því ferskt og nútímalegt yfirbragð með nýjum áherslum og breyttum persónum.
Í sýningunni eru mörg af vinsælustu dægurlögum fortíðar flutt með nýjum textum sem segja sögu unga parsins á skemmtilegan hátt. Sýnt var í veislusal Rauða hússins á annarri hæð.
Hér má sjá ýmsar myndir frá sýningum á Stöndum Saman