Næst á dagskrá
Næst á dagskrá
Leikfélag Eyrarbakka mun setja upp 6 sýningar á Kvennaráði í Rauða Húsinu á Eyrarbakka í október og nóvember 2026. Frumsýning verður 30. október.
Höfundur: Sella Páls
Leikstjóri er Hulda Ólafsdóttir.
Leikarar: Auður Elín Hjámarsdóttir, Elín Rúnarsdóttir, Feng Hannesdóttir
Kvennaráð fjallar um Þorgerði, áttræða ekkju sem var stoð og stytta áhrifamikils manns í fimmtíu ár og nú vill hún breyta til. Samband hennar við einkadótturina, forstjórann Birnu, er þvingað vegna tengdasonarins sem ekkjan grunar um græsku. Er ekkjan fer að taka á eigin málum bregst Birna illa við og ásakar hina kínversku heimilishjálp Mai um samsæri. En þegar Birna þarf a glíma við örðugar aðstæður koma móðir hennar og Mai henni á óvart.