Leikarar: Snæfrost Sara Arnar, Gerður Eðvarðsdóttir, Birkir Örvarsson, Guðrún Ósk Guðjónsdóttir, Margrét Magnúsdóttir, Sigurjón Björnsson, Álfrún Auður Bjarnadóttir, Margrét Ósk Óskarsdóttir, Guðbjörg Marý Eyjólfsdóttir, Jón Ómar Sigfússon, Auður Elín Hjálmarsdóttir
Leikstjóri: Hulda Ólafsdóttir
Leiksýningin Einu sinni á Eyrarbakka var samin af félögum Leikfélags Eyrarbakka, sem hér segir:
Óhugur eftir Guðmund Brynjólfsson
Lífsbaráttan í sjávarþorpum Íslands var um aldir hörð og sambúð manns og sjávar ströng. Eyrarbakki stóð verr en margur annar staðurinn vegna vondra lendingarskilyrða í brimasamri fjörunni. Það hindraði þó ekki dugmikla sjósóknara, þeir drógu gull úr greipum Ægis, en guldu oft dýru verði. Heima biðu konur og börn í skelfilegri óvissu. Leikþátturinn Óhugur bregður upp svipmynd úr alþýðuhúsi á Eyrarbakka um aldamótin 1900. Þar fylgjumst við með þremur ættliðum kvenna bíða þess sem verða vill.
Eyrarbakkasyrpa eftir Huldu Ólafsdóttur.
Fjórir leiknir þættir, þar á meðal leikgerð upp úr bók Eyrúnar Ingadóttur um Þórdísi ljósmóður, ásamt rímuðum brag sem tengir þættina saman. Þættirnir fjalla um fólk sem lifði og starfaði á Eyrarbakka frá miðri 19. öld og eitthvað fram á þá 20. Koma faktorshjónanna Guðmundar Thorgrimsson og Sylviu konu hans á Eyrabakka árið 1847 markaði nýja tíma í sögu Eyrarbakka. Þau báru með sér nýja, ferska menningarstrauma frá Kaupmannahöfn og starfshættir verslunarinnar breyttust til batnaðar. Eugenia dóttir þeirra giftist Peter Nielsen sem tók við faktorsstöðinni af Guðmundi. Hún var lífið og sálin í félags- og líknarmálum þorpsins, formaður Kvenfélagsins í mörg ár eftir stofnun þess.
Myndbandið Lilja mín hannað af Sellu Páls fjallar um skáldað líf Lilju frá æsku á Eyrarbakka. Söngtexti eftir Sellu Páls. Lag eftir Norbert Schultze. Gerður Eðvarðsdóttir syngur.
Bíltúrinn eftir Sellu Páls
6. september 1944 brast Ölfusárbrú á Selfossi. Eftir það var fólk og vörur ferjað yfir ána. 12. - 14. sept. hljóp það mikill vöxtur í ána að öll umferð yfir hana stöðvaðist og varð síðan mjólkurlaust á Eyrarbakka. Leikþátturinn Bíltúrinn hefst á Eyrarbakka 15. september 1944 þegar Þorsteinn er að leggja af stað í bíl sínum á Selfoss í von um að fá þar mjólk. Njörður og Lilja fá far með honum, en eitt og annað kemur upp á leiðinni.
Leikstjóri er Hulda Ólafsdóttir
Tónlist eftir Birkir Örvarsson.
Söngtextar í Eyrarbakkasyrpu og í samsönglögunum eru eftir Huldu Ólafsdóttur.
Leiksýningin er styrkt af SASS í gegnum Uppbyggingarsjóð Suðurlands. See less
Sýningar voru haldnar í Alphan húsinu, Búðarstíg 22, Eyrarbakka, sem hér segir:
9. mars kl. 16 - frumsýning (uppselt)
16. mars kl. 20 - 2. sýning (uppselt)
17. mars kl. 16 - 3. sýning
21. mars kl. 20 - 4. sýning
23. mars kl. 16 - 5. sýning
24. mars kl. 16 - 6. sýning