Kvennaráð í Rauða Húsnu í október og nóvember 2026
Eftir lát eiginmanns síns ákveður ekkjan Þorgerður að stíga loksins út úr skugga hans, hrista upp í tilverunni og taka stjórnina í eigin hendur. Sú frelsisþrá mætir harðri mótspyrnu hjá framagjarnri og stjórnsamri dóttur hennar, Birnu, sem er stöðugt á hlaupum. Í stað þess að gefast upp finnur Þorgerður dýrmætan bandamann og óvæntan sálufélaga í kínversk-íslensku húshjálpinni Mei. Verkið fjallar um uppgjör mæðgna, sjálfstæði, kynslóðamun og vináttu sem kviknar á ólíklegustu stöðum.
Kvennaráð var frumkynnt með leiklestri á vegum hópsins Leikhúslistakonur 50+ í Hannesarholti árið 2018 undir leikstjórn Sveins Einarssonar, en er nú í fyrsta sinn sett á svið.
Sella Páls – Leikskáld
Sella Páls er leikskáld, rithöfundur og framleiðandi með fjölbreyttan alþjóðlegan feril að baki, en hún skrifar jöfnum höndum á íslensku og ensku. Hún rak meðal annars veitinga- og kabarettstaðinn Palsson’s í New York og var upphaflegur framleiðandi söngleiksins Forbidden Broadway vestanhafs. Eftir heimkomuna til Íslands hefur hún sent frá sér sögulegar skáldsögur á borð við Girndarráð, fjölda leikrita og barnabókina um hrafninn Lúnu Lú. Sella einn stofnandi Leikfélags Eyrarbakka og er höfundur verksins Kvennaráð, en í nóvember verður leikrit hennar Mounting Tosca flutt í leiklestri á West End í London.
Hulda Ólafsdóttir – Leikstjóri
Hulda er leikstjóri, leikskáld og kennari með Fil. cand.-gráðu í leiklistarfræðum frá Háskólanum í Lundi. Hún hefur um árabil auðgað íslenskt leiklistarlíf og samið og leikstýrt fjölmörgum leikritum, revíum og söngleikjum, m.a. hjá Leikfélagi Keflavíkur. Hulda stýrði leiknum leiklestri á fyrsta leikritinu sínu Valkyrjunum í Þjóðleikhúskjallaranum á tíu ára afmæli kvennafrídagsins, árið 1985, þar sem allar helstu leikkonur Þjóðleikhússins tóku þátt. Auk þess að vera einn stofnenda Leikfélags Eyrarbakka samdi Hulda leikþætti og leikstýrði sýningunni Einu sinni á Eyrarbakka, samdi og leikstýrði verkinu Stöndum saman, auk þess sem hún stýrði leiklestri á leikriti sínu: Stelpur! Er baráttan búin? á 50 ára afmæli kvennafrídagsins 2025.
Auður Elín Hjálmarsdóttir – Þorgerður
Auður flutti á Eyrarbakka átján ára gömul og hefur verið driffjöður í félagslífi þorpsins æ síðan. Hún starfaði lengst af sem leikskólakennari við leikskólann Brimver, en hún útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands árið 2004. Auður hefur lagt gjörva hönd á margvíslegt samfélagsstarf, meðal annars innan skátahreyfingarinnar, kvenfélagsins og slysavarnafélagsins Bjargar. Hún er nú formaður Leikfélags Eyrarbakka og hefur mikla ástríðu fyrir leiklist og söng. Auður steig sín fyrstu spor á leiksviðinu með félaginu í sýningunum Einu sinni á Eyrarbakka og Stöndum saman.
Elka Long Rúnarsdóttir – Birna
Elka er listamaður, fædd og uppalin á Eyrarbakka. Hún er sex barna móðir sem stígur nú í fyrsta sinn á leiksvið, en æskudraumur hennar var einmitt að leika og syngja. Hún hefur áður birst sem aukaleikari á skjánum í þáttunum Ástríði, Fangavaktinni og Bjarnfreðarson. Elka fer með hlutverk hinnar metnaðargjörnu og stjórnsömu Birnu. Hún segir persónuna vera gjörólíka sér sjálfri og í mikilli tilfinningalegri krísu, en afar gefandi hafi verið að takast á við textann og kynnast þessum framandi og brothætta karakter.
Feng Jiang Hannesdóttir – Mei
Feng er fjölhæfur myndlistarmaður og kennari, búsett í Hveragerði. Hún er fædd í Guizhou í Kína en fluttist til Íslands árið 1995. Feng hefur víðtækan listrænan bakgrunn; hún lærði myndhöggvaralist í Moskvu, postulínsmálun í Kaupmannahöfn og vinnur mikið með olíumálun, en hún hefur haldið einkasýningar bæði í Danmörku og á Íslandi. Hún starfar hjá Heilsustofnun NLFÍ og hefur tekið virkan þátt í bæjarmálum í Hveragerði. Á leiksviðinu og hvíta tjaldinu lætur hún einnig til sín taka, meðal annars í kvikmyndinni IceGuys frá 2023. Hér leikur hún í fyrsta sinn á leiksviði á Íslandi.
Eygerður Þórisdóttir – Búningar og sýningarstjórn
Eygerður er fædd og uppalin á Eyrarbakka og hefur lengi verið öflug í menningar- og félagslífi þorpsins, meðal annars sem formaður Kvenfélags Eyrarbakka og stjórnarmaður í Leikfélagi Eyrarbakka. Hún starfaði um árabil sem handavinnukennari við Barnaskólann á Eyrarbakka og liggur listfengi hennar í fatasaumi og bútasaumi. Þetta er þriðja sýning Leikfélags Eyrarbakka þar sem Eygerður hannar og hefur umsjón með búningum. Hennar góða nærvera og jákvæða viðmót hjálpar okkur öllum sem njótum aðstoðar hennar. Í sýningarhléinu stýrir hún jafnframt hannyrðasýningu þar sem gestir geta virt fyrir sér vönduð handverk hennar.
Erlingur Bjarnason – Leikmynd og smíði
Erlingur hannaði og smíðaði sviðspallana og sá um allan frágang á sviðinu, þótt það fái ekki að standa þar til frambúðar. Þetta er í annað sinn sem sem Elli léttir okkur lífið við tilurð sviðsmyndarinnar með krafti sínum og dugnaði. Í fyrra lék hann auk þess stórt hlutverk í Stöndum saman. Það er hverju leikfélagi happafengur að hafa mann eins og Ella innan sinna raða.
Sigurgeir Jóhannesson – Tæknistjórn (ljós og hljóð)
Sigurgeir var öflugur liðsmaður okkar í söng- og gleðileiknum Stöndum saman í fyrra. Þar skapaði hann og lék hinn ógleymanlega karakter "Ása" auk þessa að hanna og sjá um alla tæknistjórnun. Sigurgeir stýrir ljósum, tónlist og hljóði af mikilli fagmennsku. Leikfélagið þakkar honum innilega fyrir ómældan tíma, eljusemi og ómetanlegt framlag við sýningar.
Þakkir
Að lokum þakkar Leikfélag Eyrarbakka ykkur, kæru áhorfendur, innilega fyrir komuna og stuðninginn. Við vonum að þið njótið sýningarinnar. Okkur þætti afar vænt um ef þið skilduð eftir kveðju eða umsögn á Facebook-síðu Leikfélags Eyrarbakka eða senda netbréf til leikfelageyrarbakka@gmail.com. Hægt er að fylgjast með starfsemi okkar á Facebook, Instagram og vefsíðunni leikfelageyrarbakka.is